Nicola Sturgeon ráðherra skosku heimastjórnarinnar segir að annarri þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands verði frestað þangað til að Bretland er búið að segja sig úr Evrópusambandinu. Sturgeon stefndi á að halda aðra þjóðaratkvæðagreiðslu haustið 2018 eða vorið 2019, þess í stað ætlar hún og heimstjórnin að einbeita sér að því að tryggja „mjúkt Brexit“ og hagsmuni Skotlands þegar Bretland yfirgefur Evrópusambandið eftir tvö ár.
Skotar sögðu nei við sjálfstæði frá Bretlandi í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2014 en síðan hafa verið róstursamir tímar í breskum stjórnmálum. Skotar eru mun hlynntari aðild að ESB en Bretar almennt og kom það skýrt í ljós í kosningunum í fyrra þegar meirihluti Breta vildi yfirgefa ESB en töluverður meirihluti Skota vildi vera þar áfram. Skoski þjóðarflokkurinn, SNP, missti 21 þingmann af 56 í kosningunum í byrjun mánaðarins en tapaði þó ekki miklu fylgi þegar litið er til atkvæðafjölda.