fbpx
Mánudagur 25.nóvember 2024
Eyjan

Bílabrunafaraldur í Ósló: Norska lögreglan sker upp herör

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 21. júní 2017 11:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Löreglubíll sem kveikt hefur verið í brennur í Svíþjóð. Undanfarið hefur fjöldi bíla brunnið í Ósló höfuðborg Noregs. Átta bílar urðu eldi að bráð þar í nótt.

Síðustu nætur hefur fjölda bifreiða orðið eldi að bráð í Ósló, höfuðborg Noregs. Undanfarnar tvær nætur hafa minnst ellefu bílar orðið eldi að bráð. Talið er að kveikt hafi verið í bílunum þar sem þeir hafði verið lagt yfir nóttina.

Íkveikjur í bílum hefur lengi verið vandamál í ýmsum hverfum borga í Svíþjóð en Norðmenn hafa til þessa að mestu verið lausir við þetta vandamál. Þetta virðist nú hins vegar hafa breitt úr sér yfir landamærin til Noregs. Þannig brunnu þrír bílar aðfaranótt sl. þriðjudags.

Um þverbak keyrði í nótt. Skömmu eftir miðnætti að norskum tíma var tilkynnt um tvo bíla í ljósum logum á Fururset í Ósló. Rétt fyrir þrjú fékk lögregla svo tilkynningu um bílabruna í Herlebs-götu í gamla borgarhluta Ósló. Þar brann fyrst í einum bíl og logarnir náðu að læsa sig í fimm aðra. Þannig eyðilögðust sex bifreiðar þar. Í heildina brunnu átta bílar á þremur stöðum í Ósló í nótt.

Norska dagblaðið Aftenposten birtir á fréttavef sínum í morgun frétt frá NTB-fréttastofunni um að lögreglan í Ósló ætli nú að grípa til aðgerða. Sterkur grunur um að kveikt hafi verið í bílunum. Fjöldi lögreglumanna vinna nú að rannsókn.

Að sjálfsögðu lítum við þetta mjög alvarlegum augum. Allar tiltækar einingar hafa unnið að þessu í nótt, þar með talið þyrla lögreglunnar. Það hefur þegar verið gripið til sérstakra aðgerða og þeim mun fjölga,

segir Rune Ullsand aðgerðastjóri hjá lögreglunni í Ósló við NTB-fréttastofuna. Fjöldi lögreglumanna með hunda hafa síðustu tvær nætur leitað að hugsanlegum brennuvörgum, vitni eru yfirheyrð og unnið að tæknilegum rannsóknum á vettvangi brunanna.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Arnar Þór Jónsson: Lokum stofnunum og segjum upp þeim sem ekki sinna sínu starfi

Arnar Þór Jónsson: Lokum stofnunum og segjum upp þeim sem ekki sinna sínu starfi
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Stjórnarmyndun eftir kosningar: Framsókn mögulega í ríkisstjórn – afdrif Ásmundar gætu gefið tóninn

Stjórnarmyndun eftir kosningar: Framsókn mögulega í ríkisstjórn – afdrif Ásmundar gætu gefið tóninn
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Ræðum ESB!

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Ræðum ESB!
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sér íslenskir skattar og yndi stjórnlyndra flokka

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sér íslenskir skattar og yndi stjórnlyndra flokka