fbpx
Þriðjudagur 26.nóvember 2024
Eyjan

Farsíminn bjargaði Lisu þegar „Móðir Satans“ sprakk

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 25. maí 2017 18:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Farsími Lisu, blóðugur og brotinn. Hann bjargaði sennilega lífi hennar.

Sprengjan sem íslamistinn Salman Abedi sprengdi í Manchester á mánudagskvöld var með sprengiefnablöndu sem kallast „Móðir Satans“ meðal sprengjusérfræðinga. Hún var sömu gerðar og sprengjur sem notaðar voru í Lundúnum 2005, í París í nóvember 2105 og í Brussel í mars 2016. Slíkar sprengjur eru iðulega notaðar af hryðjuverkamönnum.

Stálhlutur úr sprengjunni liggur á blóðugu gólfinu í inngangssal Manchester Arena-tónleikahallarinnar.

Í breska blaðinu Independent kemur fram að sprengjan hafi verið það flókin í samsetningu, og svo erfitt að nálgast efnið í hana í Bretlandi, að sérfræðingar telja afar ólíklegt að Salman Abedi hafi verið einn að verki. Þrátt fyrir þetta séu sprengjur af þessari gerð þannig að kunnáttumenn geti búið þær til nánast hvar sem er. Breska lögreglan mun hafa fundið efni til sprengjugerðar við húsleitir í Manchester.

Átta menn hafa verið handteknir og færðir til yfirheyrslu í Bretlandi og í Líbýu hafa faðir og yngri bróðir Salman Abedi verið teknir höndum. Bróðirinn hefur upplýst að hann vissi um fyrirætlanir eldri bróður síns.

Bresk yfirvöld búast við því að fleiri hryðjuverk verði framin á næstunni þar sem framundan er löng fríhelgi, og er mikill viðbúnaður nú til að mæta þeim. Meðal annars hafa allar 27 helstu áfallahjálpamiðstöðvar í landinu verið settar í viðbragðsstöðu, að því er segir á vefsíðu Sky News.

Lisa Bridgett bjargaðist naumlega og liggur nú á sjúkrahúsi. Hún missti löngutöng vinsti handar og fékk stálró gegnum vinstri vangann sem staðnæmdist við nef hennar.

Á sama tíma koma fram frásagnir frá fólki sem lenti í árásinni í Manchester. Lisa Bridgett (45) stóð í inngangssal Manchester Arena-tónleikavangsins og talaði í farsímann sinn þegar jíhad-vígamaðurinn Salman Abedi þrýsti á rofann sem tendraði „Móður Satans.“ Ótal stálskrúfur, rær og annað sem sett var í „naglasprengjuna“ til að valda hámarks líkamstjóni fórnarlambanna þeyttist í allar áttir.

Stálró hæfði löngutöng Lisu á vinstri hendi þar sem hún hélt á símanum. Fingurinn tættist af hendinni, róin lenti í símanum og fór svo gegnum vanga Lisu og stöðvaðst síðan við nef hennar. Lisa brákaðist einnig á ökkla eftir hlut úr sprengjunni og fékk sár eftir annað sprengjubrot á mjöðm.

Steve Bridgett eiginmaður hennar lagði út myndir og lýsingu á þessu á Facebook-síðu sinni í dag. Hann segir að síminn hafi sjálfsagt bjargað Lisu þar sem hann dró úr kraftinum þegar róin lenti á honum áður en hún fór í höfuð Lisu. Sjálf muni Lisa jafna sig til fullnustu líkamlega en vísast fá ör í andlit og búin að missa fingur. Hér fyrir neðan er Facbook-færslan með myndum af blóðugum og ónýtum símanum sem reyndist lífgjafi, blóðugum skó Lisu og ró úr sprengjunni.

Well here goes…..Lisa is in a positive mood and feels very lucky to be alive, witnessing first hand what could of been…

Posted by Steve Bridgett on 24. maí 2017

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Oddvitinn búinn að fá nóg af tali um útlendingaandúð Íslendinga – „Jæja góði“

Oddvitinn búinn að fá nóg af tali um útlendingaandúð Íslendinga – „Jæja góði“
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 5 um ESB/Evrópu: Það þarf sterka Evrópu til að tryggja öryggi og velferðar barnanna okkar

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 5 um ESB/Evrópu: Það þarf sterka Evrópu til að tryggja öryggi og velferðar barnanna okkar
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Sauð rækilega upp úr á hitafundi í Ölfusi – „Þú ert bara galin manneskja og þú skalt bara haga þér“

Sauð rækilega upp úr á hitafundi í Ölfusi – „Þú ert bara galin manneskja og þú skalt bara haga þér“
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Einmanaleiki drykkjunnar

Óttar Guðmundsson skrifar: Einmanaleiki drykkjunnar
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Stefna á frekari sókn á erlendum mörkuðum

Stefna á frekari sókn á erlendum mörkuðum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Atlaga Stefáns Einars að Þórði Snæ hjálpar Samfylkingu – tryggir jafnvel kjör fyrrum ritstjóra Fréttablaðsins

Orðið á götunni: Atlaga Stefáns Einars að Þórði Snæ hjálpar Samfylkingu – tryggir jafnvel kjör fyrrum ritstjóra Fréttablaðsins