Þjóðhátíðardagur Noregs, 17. maí, er haldinn hátíðlegur í dag. Þá fjölmenna Norðmenn í skrúðgöngum um stræti og torg og mikill mannfjöldi safnast víða saman til að njóta dagsins.
Í ár eru hátíðarhöldin öðruvísi en fyrr því yfirvöld hafa nokkurn sýnilegan viðbúnað gegn hryðjuverkaógn. Sú hætta er nú talin raunveruleg í ljósi voðaverka sem hafa verið framin í Þýskalandi, Frakklandi, Bretlandi og Svíþjóð. Einkum óttast menn að reynt verði að aka stórum bílum inn í mannfjölda.
Norska ríkisútvarpið greinir frá því að til að varna þessu hafi mörgum hliðargötum verið lokað t. d. í höfuðborginni Ósló. Meðal annars er strætisvögnum lagt fyrir göturnar til að hindra bílaumferð.
Þó nokkuð af ökutækjum eru nú staðsett víða um borgina sem liður í þeim öryggisráðstöfunum sem nú eru virkjaðar. Við höfum einnig komið fyrir öðrum hlutum sem gera það að verkum að við höfum meiri stjórn,
upplýsir Rune Hekkelstrand aðgerðastjóri í lögregluumdæmi Óslóar.
Bílaumferð er einnig víða bönnuð í tengslum við hátíðarhöldin í dag. Lögreglumenn munu einnig verða sýnilegri en áður á þjóðhátíðardegi og margir til staðar vopnaðir hríðskotabyssum og öðrum öflugum skotvopnum. Hekkelstrand segir einnig við Aftenposten að nokkuð verði um öryggisaðgerðir af hálfu lögreglu sem ekki verði sýnilegar almennum borgurum.
Norska öryggislögreglan PST metur það svo að hryðjuverkahættan í Noregi sé nú „líkleg“ á þessu ári. Hún var nýverið hækkuð úr „möguleg“ í „líkleg.“
Í gærkvöldi réðust norskir lögreglumenn inn í íbúð Arfan Bhatti þekkts öfgaíslamista í Ósló, færðu hann á brott og gerðu húsleit. Ekki hefur verið gefið upp um ástæður þeirrar aðgerðar.