Yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Afghanistan hefur að því er virðist staðfest að Rússar sendi vopn til Talibana. Þeir há vopnaða baráttu gegn Bandaríkjunum og öðrum bandalagsþjóðum í landinu og hafa gert undanfarin 15 ár. Þetta er víst til að gera samskipti Bandaríkjanna og Rússlands enn erfiðari en þau eru nú þegar afar spennuþrungin.
Hershöfðinginn John Nicholson er yfirmaður bandaríska hersins í Afghanistan. Á blaðamannafundi sem haldinn var í Kabúl, höfuðborg Afghanistan í gær vegna heimsóknar Jim Mattis varnarmálaráðherra til landsins sátu þeir fyrir svörum.
Þegar blaðamaður spurði hershöfðingjann um þær sögusagnir að yfirvöld í Kreml vopnuðu Talibana hafnaði hann þeim ekki.
Við fáum í sífellu fregnir af slíku samstarfi. Við styðjum alla þá sem vilja hjálpa okkur í sáttaferlinu. Hver sá sem sér deiluaðilum fyrir vopnum sem standa fyrir árasum líkt og þeirri sem við urðum vitni að fyrir tveimur dögum í Mazar-e-Sharif er ekki að stuðla að friðsamlegri lausn deilunnar,
sagði Nicholson með Mattis varnarmálaráðherra sér við hlið og vísaði til árásar Talibana á borgina Mazar-e-Sharif í norðurhluta landsins þar sem meira en 100 hermenn létust.
Háttsettur yfirmaður í bandaríska hernum á svæðinu sem ræddi við Washington Post sagði að Rússar hefðu stórlega aukið vopnasendingar sínar til Talibana á undanförnum 18 mánuðum. Þeir væru að senda stórar vélbyssur og fleiri þungavopn undir því yfirskini að þeim yrði beitt gegn Íslamska ríkinu í austurhluta Afghanistan. Þessi vopn væru nú að finnast í suðurhluta landsins, í héruðunum Helmand og Kandahar þar sem Íslamskra ríkið væri ekki með neina starfsemi.
Öll þau vopn sem koma hingað frá erlendu ríki eru brot á alþjóðalögum nema þau sem send eru til ríkisstjórnar Afghanistan,
sagði varnarmálaráðherrann á blaðamannafundinum.