Gleðilega páska, allir lesendur síðunnar – nær og fjær!
Og nei, þetta er ekki komið frá gyðjunni Ishtar, sbr. Easter, eins og gengur ljósum logum á Facebook. Það er nafnið á hátíðinni á ensku og þýsku. En það voru ekki heimstungumál í fornöld.
Páskahátíðin er haldin í gyðingdómi og heitir þar Pesah, en á grísku heitir hún Πάσχα en á latínu Pascha– þetta er sama orð og páskar á íslensku.