Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra tekur af öll tvímæli um að einstaklingar á vegum vogunarsjóða hafi boðið honum mútur fyrir hagfellda niðurstöðu í viðræðum við íslensk stjórnvöld. Segir hann í samtali við DV í dag að menn hafi ekki komið upp að honum með skjalatöskur fullar fjár eða skriflegt tilboð, hins vegar hafi ekki farið á milli mála hvað um var að ræða:
Orðalagið var með ýmsum hætti en ekki hægt að skilja það öðruvísi en svo að miðað við þá hagsmuni sem þarna væru undir þá gætu menn vel hugsað sér að sjá af örlítilli prósentu til að liðka fyrir samningum og sú litla prósenta væri umtalsverð upphæð,
segir Sigmundur Davíð. Hann sagði á sunnudag að honum hefði verið boðnar mútur sem forsætisráðherra af fulltrúum vogunarsjóðanna. Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, sagði þó á mánudag að hann teldi ummæli Sigmundar óljós og að hann yrði að segja það hreint út ef menn hefðu reynt að bera á hann fé sem forsætisráðherra.
Menn sendir til að ræða við hann
Sigmundur kveðst hafa komið inn á þessi mál áður, meðal annars í þinginu, svo Brynjar hafi hugsanlega ekki fylgst nógu vel með undanfarin ár.
Reyndar finnst mér sérkennilegt að menn ímyndi sér að svona hlutir gerist með því að send séu inn skrifleg tilboð um mútur, eða byrjað á því að nefna einhver tiltekin verð og sagt að maður geti fengið tösku í skáp á umferðarmiðstöðinni. Þetta gerist ekki þannig, en nokkrum sinnum voru menn sendir til að ræða við mig og gera mér það ljóst að þeir væru tilbúnir að leysa málin þannig að stjórnvöld á Íslandi gætu ekki kvartað en ég gæti jafnframt orðið mjög sáttur sjálfur og hætt að hafa áhyggjur af þessu stjórnmálavafstri,
segir Sigmundur í samtali við DV. Bætir hann við að sem fyrr segir að ekki hafi verið hægt að skilja þessi tilboð öðruvísi en að hans biði skerfur af þeim hagsmunum sem þarna var um að tefla. Þótt tilboð þessi hafi verið undir rós segir Sigmundur sem fyrr að skilaboðin hafi verið mun skýrari á seinni stigum málsins.
„Þegar menn fóru hina leiðina og sendu menn til að hóta mér og sögðu mér að ég hlyti að gera mér grein fyrir því sem upplýstur maður að þegar svona miklir hagsmunir væru undir þá væri ekki hægt að leyfa okkur Íslendingum að búa til það fordæmi sem ég var að reyna að búa til. Öðruvísi en að mönnum yrði á einhvern hátt refsað fyrir það. Sem sagt, að ég skyldi ekki láta mér detta í hug að ég kæmist upp með þetta. Þannig að það var allt saman mjög skýrt, en þegar menn reyna að opna á að gefa einhverjum hlutdeild í einhverjum ávinningi þá ímynda ég mér nú að það sé alltaf gert á þann hátt að hægt sé að neita því síðar. Og iðulega í gegnum einhverja milliliði.“
Fólk er að átta sig á hvernig þessir aðilar starfa
Sigmundur Davíð hafði í viðtalinu á Sprengisandi sagt vogunarsjóðina stóru hafa verið komna með allar helstu PR-stofur og lögfræðistofur landsins í vinnu. Aðspurður hvort ekki hafi verið hægt að bregðast við þessum tilboðum og/eða hótunum með einhverjum hætti og rekja þær og tilkynna segir Sigmundur:
Maður ræddi þessi mál fyrst og fremst við samstarfsmennina sem voru að fást við þetta með manni en jú, ég velti hinu fyrir mér. En þegar maður sá viðbrögðin við því þegar ég fór að tjá mig um þetta, til að mynda á flokksþingi Framsóknarmanna 2015, þá voru það bara útúrsnúningar og grín gert að því. Þá hugsaði ég bara að menn skildu þetta ekki, menn væru ekkert að kveikja á því hversu umfangsmikið og stórt þetta allt saman er. Hvernig kaupin gerast á eyrinni og hvernig menn haga sér í þessum heimi.
Sigmundur segir að það sé þó að skýrast núna. Fólk sé að átta sig á þessu. Heimildamyndir á borð við Ransacked og síðan atburðir að undanförnu, meðal annars salan á hlutnum í Arion banka geri það að verkum að menn séu meira farnir að spá í hvernig þessir aðilar starfi.
„Þannig að mér finnst nú eins og það sé að renna upp ljós fyrir mönnum, þótt Brynjar blessaður vilji hafa varann á.“