fbpx
Laugardagur 29.mars 2025
Eyjan

„Alþingi á ekki að vera með starfmenn sem tala ekki Íslennsku“ – Ráðherra og þingmenn koma Nichole til varnar

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 23. mars 2017 10:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nichole Leigh Mosty þingmaður Bjartrar framtíðar og Þorsteinn Víglundsson félagsmálaráðherra. Samsett mynd/DV

Svívirðingar hafa fallið um Nichole Leigh Mosty þingmann Bjartrar framtíðar á samskiptamiðlum undanfarna daga og hefur fólk sagt að hún eigi að læra íslensku áður en hún taki sæti á þingi. Nichole hefur mátt þola mikla gagnrýni í vikunni, eða allt frá því að hún tjáði sig um ummæli Mikaels Torfasonar um fátækt á Íslandi. Mikael fór mikinn í viðtali við Silfrið síðastliðinn sunnudag og gagnrýndi meðal annars getuleysi stjórnvalda til að glíma við fátækt auk þess sem hann sagði sögur af fátæku fólki hér á landi sem hann hefur rætt við.

Nichole steig fram í kjölfarið og sagði að RÚV hefði gefið Mikael of mikið rými og að hann talaði einhliða um fátækt. Nichole fékk yfir sig holskeflu af gagnrýni og greindi Vísir frá því í gær að Nichole hefði lokað Facebook-reikningi sínum í kjölfarið. Það gerði hún eftir að níu ára sonur hennar opnaði Facebook-síðu hennar þar sem hann las svívirðingar um móður sína. Undir þeirri frétt mátti sjá ummæli á borð við:

Margir tóku í sama streng og Guðlaugur, þar á meðal Júlíana Magnúsdóttir sem sagði:

Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir ummælin um Nichole undanfarin sólarhring ógeðfelld:

„Kommentin um hana undanfarinn sólarhring eru ógeðfelld. Mér er til efs að margir stæðu sig eins vel og hún gerir við að vinna störf þingmanns á öðru tungumáli en sínu eigin,“

Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Nichole sagði við Vísi að snúið hafi verið úr orðum sínum þar sem af því að hún hefur ekki fullkomið vald á íslensku:

„Ég hef velt því fyrir mér hvort ég ætti að senda allt sem frá mér fer í yfirlestur? Ég viðurkenni það að íslenska mín er ekki fullkomin. Ég var til dæmis ekki að gagnrýna RUV. En, einhvern veginn varð sú fyrirsögn til,“

sagði Nichole við Vísi. Fjölmargir hafa tekið upp hanskann fyrir Nichole, þar á meðal þingmenn.

„Af stuttu samstarfi mínu við Nichole að dæma þá er hún ein af þeim þar sem what you see is what you get og hispurslaus einlægni er ofar sýndarmennsku og klækjum. Það er hvetjandi að sjá konu vaða í slagi sem hún brennur fyrir og lætur ekki stoppa sig að orðin reynast oft erfið og setningarnar verða stundum bjagaðar,“

sagði Hildur Sverrisdóttir á Facebook-síðu sinni. Þá segir Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, að þó hann hafi ekki haft löng kynni af Nichole hafi þau verið góð.

Ég veit að þar er á ferðinni kona sem á fullt erindi á Alþingi. Hún er baráttukona með sterka sannfæringu, bakgrunn og reynslu sem mun án efa nýtast henni og þinginu vel. Hún er líka töffari og ræður án efa vel við það álag sem þingmennskunni fylgir. Vissulega þurfa þingmenn að þola gagnrýni og hafa þykkan skráp. Þau ummæli sem hafa verið látin falla um Nichole hafa hins vegar mörg hver lítið með málefnalega gagnrýni að gera. Þau eru mun fremur þeim sem þau hafa látið falla til minnkunnar en málefnalegri umræðu til gagns.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

„Undarlegt að fólk gagnrýni þá skoðun sem einhvers konar „menntasnobb““

„Undarlegt að fólk gagnrýni þá skoðun sem einhvers konar „menntasnobb““
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sporin hræða

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Sporin hræða
Eyjan
Fyrir 1 viku

Heiða Björg Hilmisdóttir: Kannski er mér kennt um að Sjálfstæðisflokkurinn komst ekki til valda

Heiða Björg Hilmisdóttir: Kannski er mér kennt um að Sjálfstæðisflokkurinn komst ekki til valda
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Tengdamóðirin var í sambandi við Áslaugu Örnu

Orðið á götunni: Tengdamóðirin var í sambandi við Áslaugu Örnu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Könnun – Hver tekur við af Ásthildi Lóu sem mennta- og barnamálaráðherra?

Könnun – Hver tekur við af Ásthildi Lóu sem mennta- og barnamálaráðherra?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Steinunn Ólína skrifar: Höfnum vansældarviðskiptum og veljum vellíðan

Steinunn Ólína skrifar: Höfnum vansældarviðskiptum og veljum vellíðan