Mikil ringulreið er í bresku pressunni í kvöld vegna árásarinnar á breska þinghúsið í dag. Fullyrt var að Abu Izzadeen múslimaklerkur og talsmaður Al Ghurabaa-samtakanna hafi verið maðurinn sem var skotinn til bana af lögreglu fyrir utan breska þinghúsið í Lundúnum í dag en samkvæmt BBC er hann enn í fangelsi. Al Ghurabaa-samtökin eru bönnuð á Bretlandi fyrir að hvetja til hryðjuverka. Breska vefritið Independent birti frétt fyrir stundu þar sem fullyrt var að Izzadeen hafi verið árásarmaðurinn og birti vefritið myndir máli sínu til stuðnings. Eftir að BBC fyllyrti að Izzadeen sé enn bak við lás og slá hefur sú frétt verið fjarlægð.
Ekki kemur á óvart að Izzadeen sé bendlaður við voðaverkið. Segja má að Izzadeen sé alræmdur fyrir skoðanir sínar og hefur hann verið ófeiminn við að tjá þær í fjölmiðlum. Hann hefur talað um mikilvægi þess að drepa lögreglumenn og hvernig breskir þingmenn séu villutrúarmenn. Á YouTube-myndbandaveitunni má sjá fjölda myndskeiða með Abu Izzadeen þar sem hann er tekinn tali eða hann situr og prédikar íslam.
Síðum hans á samfélagsmiðlunum var lokað eftir fréttir Independent og Channel 4 um að hann hafi verið árásarmaðurinn. Um hríð var búið að breyta Wikipedia síðu Izzadeen þar sem greint var frá frétt Independent, því hefur svo verið breytt til baka. Enn sem komið er hafa engin hryðjuverkasamtök lýst yfir ábyrgð sinni á árásinni í London í dag.