Fjármálaeftirlitið gerir athugasemdir við verklag og eftirlit vegna viðskipta við nokkra af viðskiptavinum Borgunar hf. á erlendum mörkuðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Borgun.
Meginmarkmið athugunar FME var að kanna hvort lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka væri fylgt, var þá kannað verklag Borgunar við áreiðanleikakannanir á viðskiptamönnum, reglubundið eftirlit, tilkynningaskyldu og innra eftirlit. Í niðurstöðunni gerir FME alvarlegar athugasemdir við aðallega í tengslum við umfang og nákvæmni áreiðanleikakannana, verklag og verkferla.
Haukur Oddsson forstjóri Borgunar segir félagið taka athugasemdum FME alvarlega:
Borgun tekur athugasemdum FME alvarlega og mun tryggja í samstarfi við FME að starfsemin fullnægi betur en nú er ítrustu skilyrðum laga m.t.t. könnunar á áreiðanleika viðskiptamanna og skyldum þáttum, en lítið hefur reynt á túlkun þessara reglna, sem eru um ýmislegt matskenndar, í íslenskri stjórnsýslu- og réttarframkvæmd. Borgun hefur þess í stað reitt sig á reglur, túlkun og úttektir kortafélaganna Visa og MasterCard sem byggja á sömu evrópulögum og hér um ræðir,
segir Haukur. Stefnt verður að því að uppfylla kröfur FME innan tveggja mánaða:
Það er brýnt að taka fram að hvorki er um að ræða grun um peningaþvætti né fjármögnun hryðjuverka. Borgun hefur þegar hafist handa við að uppfylla fyrirmæli FME, meðal annars með því að segja upp viðskiptasambandi við nokkra aðila