Hér er viðtal við Jón Baldvin Hannibalsson úr Silfrinu í dag. Jón man tímana tvenna eða þrenna, allt aftur í heimsstyrjöld, og auðvitað kalda stríðið, var á hápunkti ferils síns þegar því lauk, er fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra í Bandaríkjunum, en fylgist vel með samtímanum og greining hans á þeim óvissutímum sem við lifum er mjög skörp.
Við ræðum uppgang lýðskrumshreyfinga, Evrópusambandið, evruna, Nató, Rússland, náttúrlega Trump og ástandið í Bandaríkjunum og lítum aðeins til Bretlands – og Skotlands og þá sem hluta af Norðurlöndunum en Jón telur möguleika að Skotar fari þá leið eftir Brexit.
Viðtalið má sjá á vef RÚV.