Víða var komið við í spjalli Skúla Mogensen forstjóra og aðaleiganda WOW Air við Björn Inga Hrafnsson í Eyjunni á ÍNN í liðinni viku. Meðal annars var rætt um vöxt flugfélagsins og sókn þess á mörkuðum.
Björn Ingi spurði Skúla hvernig hann gæti verið að kaupa nýjar þotur á sama tíma og samkeppnisaðilinn Icelandair væri nánast í vörn að reyna að feta sig við nýjar aðstæður.
Björn Ingi spurði hreint út:
Ertu að skuldsetja þig svona mikið eða er þetta vöxturinn sem knýr þetta svona áfram?
Skúli sagði að þetta hefði ekki verið hægt nema vegna þess að Airbus-flugvélaverksmiðjurnar hefðu stutt dyggilega við bakið á WOW AIR.
Þeir hafa fylgst með okkur mjög náið frá fyrsta degi, svo og mjög stórir flugvélaleigjendur sem þekkja þennan bransa út og inn. Þeim fannst þetta módel okkar mjög áhugavert…Ég tel okkur mjög vel setta þar, þannig að í og með að þeir hafa séð allar okkar tölur og allan þennan vöxt þá hefur það verið ómetanlegt fyrir okkur að njóta stuðnings þessara erlendu aðila í þessari uppbyggingu. Annars væri það ekki hægt.
Skúli benti einnig á annan þátt sem skipti höfuðmáli:
Hitt sem er búið að hjálpa okkur mjög mikið, er það að af því að vaxtakostnaður í heiminum er núna í sögulegu lágmarki, nema á Íslandi…Við erum ekki að fjármagna okkur hér heima, erum ekki að gera það sem betur fer. En fyrir vikið erum við núna að taka fimm glænýjar þotur í viðbót í notkun í ár. Þetta eru fjárfestingar upp á tugi ef ekki hundruði milljarða, sem við erum bæði að kaupa, en líka í kaupleigum og í leigu. Vaxtakostnaðurinn, greiðslubyrðin af nýjum flugvélum, er.. – þú færð til baka bara út af minni eldsneytiskostnaði. Sparnaðurinn í nýjustu tækninni í eldsneytisnotkun er miklu meiri en afborgun af nýrri vél versus eldri vél. Þetta er lykilatriðið. Þess vegna höfum við getað, og það er mjög auðvelt að sýna fram á þetta. Þannig að þar af leiðandi er í mínum huga galið að vera ekki að kaupa nýjar flugvélar í núverandi ástandi…Við erum með einn yngsta flotann í Evrópu og ég til mikla hagkvæmni og hagræðingu fólgna í því, fyrir utan það að vera með glænýjar flugvélar og frábært pródukt fyrir vikið.
Hér er viðtalið við Skúla í heild sinni:
https://vimeo.com/204420848