Þessi afkomuviðvörun er bæði athyglisverð og afgerandi en mikil lækkun er á núverandi EBITDA hlutfalli og áætlaðri afkomu 2017, segir Snorri Jakobsson, sérfræðingur hjá greiningu Capacent, þegar Eyjan bað hann um að reyna að skýra skarpa lækkun á gengi bréfa Icelandair í Kauphöll Íslands í dag, eða um tæplega 24%. Vart þarf að taka fram að slík lækkun á sér ekki mörg fordæmi. Lætur nærri að markaðsvirði Icelandair Group hafi um 26,5 milljarð króna í dag.
Sjá afkomuviðvörun sem send var út til fjárfesta í dag.
„Miklar sveiflur í afkomu Icelandair undirstrika þá óvissu sem er í rekstri flugfélaga og hversu hverful eftirspurn í ferðaþjónustu getur verið. Erfitt er að spá, sérstaklega um framtíðina, hefur stundum verið sagt. Það á við hér. Hvað gerist með olíuverðið, til dæmis? Ef það hækkar þá hækka flugmiðar í verði og fólk flýgur minna. Hvað gerist með íslensku krónuna? Ef hún heldur áfram að vera svona sterk, eða styrkist enn frekar, þá hætta túristar kannski að flykkjast til Íslands, því allt verður svo dýrt. Hvað gerist ef það kemur eldgos á Íslandi eða hryðjuverk aukast í helstu viðskiptaborgum Icelandair í Evrópu?“ segir Snorri ennfremur.
„Ljóst er að hækkun olíuverðs, styrking krónunnar á fjórða ársfjórðungi höfðu öll neikvæð áhrif á afkomu Icelandair. Einnig hefur samkeppni á flugleiðinni til Íslands haft umtalsverð áhrif á rekstur Icelandair en verð flugfargjalda var 25% lægra í janúar 2017 en það var í janúar 2016 skv. vísitölu neysluverðs. Aukin pólitísk óvissa vestanhafs gæti einnig dregið úr eftirspurn eftir flugfargjöldum. Óvissu þættirnir eru því margir og ytri stærðirnar sem hafa áhrif á rekstrarafkomu Icelandair hafa þróast í óhagstæða átt fyrir Icelandair til skamms tíma,“ bætir hann við.
Í kjölfar níu mánaða uppgjörs Icelandair lækkaði Capacent verðmat Icelandair en ein aðalástæða þess var sú að hlutfall launakostnaðar af veltu var orðinn rúm 25% á árinu og gæti orðið um 27% á árinu, en var að meðaltali tæp 24% frá 2012 til 2015. Hærri launakostnaður hefur töluverð neikvæð áhrif á EBITDA hlutfallið til lækkunar og gerir reksturinn þyngri en ella.