Það verður ekki annað sagt en að Vigdís Hauksdóttir kveðji stjórnmálin með hvelli. Allt nötrar vegna stóra skýrslumálsins – líka embættismannakerfið. En Vigdís er að hætta, líklega þarf hún brátt að eftirláta sviðið þeim Framsóknarmönnum sem sækjast eftir að halda áfram í pólitík. Lilja Alfreðsdóttir tekur við efsta sætinu á framboðslista flokksins í Reykjavík suður af Vigdísi. Ætli megi ekki segja að hún sé annarrar gerðar sem pólitíkus?
Vigdís vill lemja á kerfinu, Lilja kemur innan úr kerfinu.
Guðlaugur Þór fjarlægist óðum skýrsluna sem reyndar er búið að breyta mikið frá upprunalegri gerð. Hann vill væntanlega eiga möguleika á að verða ráðherra eftir kosningar – það er ekki víst að skýrslan sé sérlega gott vegarnesti á þeirri leið.
Einkennilegasta uppákoman er svo frásögn sjálfstæðismannsins og alþingismannsins Haraldar Benediktssonar um embættismanninn sem hótaði honum. Haraldur er bændahöfðingi, býr á jörð sjálfs Jóns Hreggviðssonar, og lætur sér varla margt fyrir brjósti brenna. Embættismaðurinn, Guðmundur Árnason, á að hafa hótað Haraldi eignamissi.
Það er reyndar vandséð hvernig embættismaður, hversu háttsettur hann er, getur orðið valdur að slíku. Hafi Guðmundur haft í hótunum um þetta eru það orðin tóm. Hann getur hins vegar höfðað meiðyrðamál fyrir dómstólum og farið fram á bætur – sem gætu lýst sér í einhvers konar eignamissi séu þær nógu háar.
En það er svo angi af sögunni að milli Guðmundar Árnasonar, sem er ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, og Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins er sagður ríkja mikill trúnaður. Þeir hafa starfað náið saman síðustu árin – frægt er í heimi stjórnmálanna að Bjarni kann miklu betur við sig innan um embættismenn en í hópi félaganna í þingflokknum.
Nú á fimmtudagskvöld verða formannaumræður í sjónvarpinu (Steinsteypuöldin frestast vegna þeirrra). Það er ólíklegt annað en að skýrslumálið beri á góma – þótt kannski séu ýmis önnur mál brýnni. Bjarni Benediktsson verður þar og líka Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sem fær tækifæri til að láta ljós sitt skína – og jafnvel styrkja stöðu sína í átökum um formannssætið í Framsóknarflokknum.
Bjarni Benediktsson og Guðmundur Árnason. Sagður er ríkja mikill trúnaður milli þeirra.