Barack Obama kom til Evrópu um daginn og varaði við þeirri ógæfu að Evrópusambandið liðaðist í sundur. Hann sagði að það væri mikilvægt fyrir allan heiminn að Evrópuríki störfuðu saman.
Nú er orðið ljóst að Donald Trump verður frambjóðandi Repúblikana, annars af stóru flokkunum í Bandaríkjunum, í forsetakosningum í nóvember.
Þetta eru tíðindi sem vekja ótta og ugg.
Nú þarf að vara Bandaríkjamenn alvarlega við, rétt eins og Obama gerði við okkur í Evrópu um daginn – leiða þeim fyrir sjónir að það yrði alheimsógæfa ef slíkur fordómafullur lýðskrumari, rasisti og kvenhatari, sem höfðar til lægstu hvata kjósenda, yrði forseti.
Þetta varðar ekki bara Bandaríkin heldur allan heiminn. Embætti Bandaríkjaforseta er svo valdamikið að undan áhrifum þess sleppur maður varla nokkurs staðar á jarðarkringlunni. Og það er ekki ennþá búið að finna almenna flóttaleið út í geim.