Kæmi til greina að nota þessi merkilegu, já einstæðu, mannvirki í upprunalegum tilgangi?
Semsé pissa og kúka.
Ferðamenn hljóta stundum að lenda í spreng, þótt reyndar standi hér og þar í borginni nokkuð veglegir salernisturnar með „sjálfvirkum hreinsibúnaði“. Maður þekkir það sjálfur úr ferðalögum erlendis að þetta getur verið erfitt.
Annars eru þetta merkilegar byggingar, hljóta að hafa þótt framsæknar á sínum tíma. Þær voru reistar 1930. Það eru semsagt bráðum liðin hundrað ár. Upprunalega starfsemin var í þeim fram til 2006. Núllið var það kallað vegna þess að þetta var fyrir neðan númeraðar byggingar í Bankastræti. En þetta er náttúrlega í næsta húsi við Stjórnarráðið og skrifstofu forsætisráðherra.
Svona leit þetta út á fimmta áratugnum. Þarna sést líka í hluta af Lækjartorgi, út á Kalkofnsveg og kolakraninn gamli gnæfir yfir. Takið eftir hvað götuluktin er falleg.
Starfsemin mun meðal annars hafa verið lögð af vegna þess að húsnæðið þótti óhentugt, aðgengi var erfitt, ekki síst fyrir fatlaða, mikil þrengsli og einangrun léleg. Þá þótti öryggi starfsmanna ógnað að kvöldlagi – ég man eftir manni í hvítum slopp sem seldi greiður, smokka, tyggjó og þvíumlíkt. Hann var ekki þesslegur að hann gæti staðið í miklum átökum.