Um daginn var rifjað upp að fimmtíu ár væru liðin frá stofnun tískuverslunarinnar Karnabæjar. Það var á bítlatímanum og búðin seldi föt fyrir ungt fólk. Mér hefur alltaf þótt nafnið afar snjallt, Carnaby Street í London, helsta tískugatan á þessum árum, varð að hinum íslenska Karnabæ, rétt eins og The Beatles urðu að Bítlunum.
Guðlaugur Bergmann sem stofnaði Karnabæ var snjall maður og ákaflega líflegur, frumkvöðull um margt. Ég man til dæmis eftir því að hann er fyrsti íslenski maðurinn sem ég heyrði segja „fuck“.
Síðar var þetta orð notað í tíma og ótíma, en ég var vestur í KR-húsi að spila badminton sem oftar, hef verið svona 10-12 ára, en Gulli var að spila á næsta velli. Hann hitti boltann eitthvað illa og heyrðist þá segja hátt og snjallt „fuck“. Ég man að mér brá nokkuð, þetta var óvenjulegt.
Karnabær var á þessum árum á horni Skólavörðustígs og Týsgötu, eins og sjá má á þessari ljósmynd sem Sigurður Finnsson setti inn á vefinn Gamlar ljósmyndir og gaf mér leyfi til að birta. Þetta er á síðari hluta sjöunda áratugarins, Hallgrímskirkjuturn er hálfbyggður eins og hann var lengi, þarna má líka sjá verslun Sláturfélags Suðurlands – búðir SS voru víða um borg með ágætu vöruúrvali. Þarna má líka greina skilti með auglýsingu fyrir danska tóbaksfyrirtækið Hirschsprungs, en þar mun hafa verið tóbaksverslunin Havana.