Það eru ýmsar áleitnar spurningar sem þarf að svara í baráttunni fyrir forsetakosningarnar.
Eins og hvar varstu í Icesave?
Og nú hefur bæst við spurningin – hvar varstu í þorskastríðunum?
Þá má kannski bæta við – hver var þín afstaða til ritsímans?
Fjárkláðans (sem olli því á sínum tíma að Jón forseti móðgaðist).
Og ef til vill má fara enn lengra: Hvernig stendurðu gagnvart kristnitökunni?