Þessi myndbrot eru úr ósýndri heimildarmynd eftir Ara Alexander Ergis Magnússon sem nefnist Aumingja Ísland. Þarna eru mögnuð myndbrot úr mótmælaaðgerðum mánaðanna eftir hrun – meðal annars sést þarna þegar lögregla beitir táragasi. Ari myndaði þetta allt sjálfur, en tónlistin er eftir Mugison, Einar Örn og Curver.