Kiljuþáttur sem datt upp fyrir í síðustu viku, þegar hvað mest gekk á í stjórnmálunum, verður sýndur aftur nú á miðvikudagskvöldið.
Í þættinum er innslag undir liðnum Bækur & staðir – þar förum við á Akranes og fjöllum meðal annars um Jón Hreggviðsson, Arnes Pálsson, Jón Óskar, Steinar Sigurjónsson og Sigurbjörgu Þrastardóttur.
Þarna er rætt við Steinunni G. Helgadóttur, sem hefur aðallega fengist við myndlist en líka ljóðagerð; hún gefur nú út fyrstu skáldsögu sína, Raddir úr húsi loftskeytamanns. Þetta er feikilega áhugaverð saga, frumleg, með einstæðu persónugalleríi.
Og svo er það hið mikla verk Saga tónlistarinnar eftir Árna Heimi Ingólfsson. Það hefur lengi verið beðið eftir bók af þessu tagi, sögu tónlistar á íslensku. Þetta er saga hinnar skrifuðu tónlistar, tónlistarinnar sem þróaðist eftir að menn hófu að skrifa nótur. Nær frá miðöldum og fram til vorra daga.
Þarna er blandað saman tónlistar- og menningarsögu, tónskáldaævum og hæfilegum skammti af tónvísindum. Það er ekki síst fengur í því að sjá skrifað í svo ítarlegu máli um tónlist á íslensku – með hugtökum á málinu ylhýra.