Enn og aftur er verið að egna gildru fyrir vestræn lýðræðisríki og fá þau til að fórna sínum bestu gildum. Ég les atburðina í Brussel sem úrræðaleysi illskunnar sem veit að hún á enga aðra leið en að espa upp hatur með voðaverkum. Það má ekki takast – þá sigrar hið illa. Fullt öryggi verður aldrei tryggt nema með algjörri fórn frelsisins. Þá er til lítils unnið.
Þetta skrifar Kristinn Hrafnsson blaðamaður vegna hryðjuverkaárásanna í Brussel í morgun. Það á eftir að skrifa og fjalla mikið um þessa atburði, en Kristinn kemst að kjarna málsins.