Hin evrópusinnaða miðja í íslenskum stjórnmálum er í rúst. Samfylkingin er með innan við tíu prósenta fylgi og fer sennilega lækkandi. Formaður flokksins er búinn að gefa upp boltann með innanflokksdeilur, varaformaðurinn er að hætta, vinsælasti þingmaðurinn íhugar forsetaframboð.
Björt framtíð er komin svo lágt í fylginu að varla er hægt að blása aftur lífi í flokkinn – það breytir engu þótt nánast óumdeildur indælismaður hafi verið gerður að formanni.
Viðreisn, sem átti að taka evrópufylgið frá Sjálfstæðisflokknum, á varla mikla möguleika meðan er margháttuð krísa innan ESB og almennt áhugaleysi á aðild við núverandi aðstæður.
Eina haldreipi evrópusinna þessa dagana eru fyrirheit Pírata um að efna til atkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna ef þeir komast í ríkisstjórn. Það er samt ekki víst hvort það loforð endist fram í kosningar.
Þorsteinn Pálsson skrifar grein á Hringbraut þar sem hann greinir stöðu Samfylkingarinnar. Þorsteinn telur að stærstu mistök flokksins séu að vinna ekki yfir miðjuna – þá væntanlega í átt að evrópusinnunum í Viðreisn og frjálslyndari armi Sjálfstæðisflokksins.
Þetta virkar eins og fremur hæpin greining. Fylgi Pírata er ákall um róttækar breytingar í stjórnmálum. Ójöfnuður og græðgi forréttindastétta er eitt aðalmálið í stjórnmálunum – almenningi misbýður og allt í einu finna stjórnmálamenn eins og Jeremy Corbyn og Bernie Sanders hljómgrunn og það innan flokka sem hafa haldið sig rækilega við miðjuna.
Núverandi formaður Samfylkingarinnar er fyrrverandi blairisti – og það verður að segjast eins og er, hann hefur enn mjög blairískt yfirbragð. Hann verður ekki vændur um að draga flokkinn til vinstri. Óánægjan með Samfylkinguna er ekki síst vegna þess hvað hún fjarlægðist vinstri áherslur í síðustu ríkisstjórn, beygði sig undir höfuðkirkju kapítalismans, Alþjóða gjaldeyrissjóðsinn. Þetta viðurkenndi formaður flokksins í bréfi nýskeð þegar hann sagði að flokkurinn hefði gert mistök í endurreisn banka, varðandi Icesave og skuldamál heimila.
Það verður tæplega séð að mikil eftirspurn sé eftir Samfylkingu sem rær til hægri og er hentugur samstarfsflokkur fyrir Sjálfstæðisflokkinn. En Sjálfstæðisflokkinn vantar sumpart samstarfsflokk til mótvægis við Framsókn og ef hann gefst upp á samstarfinu við Sigmund Davíð og félaga. Björt framtíð virtist um tíma geta orðið hentugur partner fyrir Sjálfstæðisflokkinn, eins og hún er í bæjarstjórn í Hafnarfirði og Kópavogi. Björt framtíð var alveg til í þetta. En sá draumur er úti.