Það er vont ef maður er farinn að dreifa röngum eða fölskum fréttum sem eru sannarlega plága á internetinu. Ég birti fyrr í dag texta sem var sagður vera kominn úr Pisa-prófi. Marga hnykkti við þegar þeir sáu þessa málleysu.
Staðreyndin mun vera sú, eins og segir á vef Menntamálastofnunar, að textinn mun vera kominn úr „dæmahefti sem Námsmatsstofnun gaf út og var til þess fallinn að gefa mynd af uppbyggingu PISA spurninga“.
Rétt er að þetta komi fram, fleiri hafa ruglast á þessu en ég, því víðar á netinu má finna að er vísað í þetta próf. Menntamálastofnun segir að það sé frá árinu 2000, og hafi sumar spurningarnar verið notaðar en aðrar ekki.