Í gær birtist úttekt í Kastljósi á eggjaframleiðanda sem varð uppvís að ótrúlegum sóðaskap og blekkingum. Eins og stundum er sagt fór „internetið á hliðina“ vegna þessa.
Í dag sagði kona sem fæst nú við blómaskreytingar, en sat nokkurn tíma á Alþingi, álit sitt á þessum fréttum. Internetið fór aftur á hliðina – má segja að Fjasbókin hafi farið í humátt á eftir konunni og alla leið út í móa.
Ætli megi ekki segja að þetta kallist að trumpa hlutina?
Og mikið afhjúpar þetta vel ístöðulaust eðli samskiptamiðla. Í öðru fjölmiðlaumhverfi hefði verið býsna auðvelt að leiða þetta hjá sér.