Í Guardian er sagt frá því að Ísland sé besti staður í heimi fyrir konur. Það er tilkynnt að sýndur verði sjónvarpsþáttur um þetta á ITV sjónvarpsstöðinni á þriðjudagskvöld. Á vef Business Insider má fræðast um að á Íslandi séu næstmest lífsgæði í veröldinni, á eftir Noregi.
Bloomberg segir frá því að erlendir fjárfestar kunni að hafa varann á gagnvart Íslandi og jafnvel láta sig hverfa héðan ef verða stjórnarskipti sem gætu getið af sér „eitraða blöndu róttækni og pólitísks óróa“. Spákaupmenn munu semsagt hugsa sig um tvisvar.
En það er ekkert sem getur bjargað ríkisstjórninni. Hún er ekki að ná í gegn með málflutning sinn – og síðustu dagana hefur þetta dálítið mikið verið að snúast upp í hræðsluáróður eins og sjá má á þessari síðu sem ber yfirskriftina Kosningar 2016 . Þar sem birtast myndir eins og þessi hér að neðan.
Ætli svona bullugangur virki?