Hér er mynd sem sýnir stíl í byggingum á Íslandi á fyrstu árum þessarar aldar. Svona til samanburðar er sett inn gömul fjölbýlishúsabyggð frá Ítalíu sem stendur líka í hlíð. Það var lesandi síðunnar sem sendi þessar myndir.
Nýja Hafnartorgið rís mjög hratt upp úr jörðinni þessa dagana, stórhýsi í þessum kassa/gáma-stíl eru líka að taka yfir svæðið fyrir ofan Hlemm. Þá er ekki vonum seinna að borgin boðar til þessa fundar, um efni sem hefur eiginlega verið tabú í umræðunni um húsbyggingar og skipulag.