Þetta eru viðbrögð Vigdísar Hauksdóttur við falli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar úr formannsstóli. Nokkuð nýstárleg túlkun á Litlu gulu hænunni.
Maður hefur séð ýmisleg viðbrögð við úrslitunum, fremur jákvæð en hitt, en við dálítið annan tón kveður hjá Vinstri grænum í kvöld.
Þeir hafa áhyggjur af því að með Sigurð Inga Jóhannsson í formannssætinu verði líf núverandi ríkisstjórnar framlengt. Rósa Björk Brynjólfsdóttir sem er í fyrsta sæti hjá VG í Kraganum skrifar á Facebook:
Tíðindi dagsins eru nefnilega ekki eingöngu mikilvæg persónuleg og innanbúðar fyrir rótklofna og hatursfulla Framsókn, heldur urðu þarna líka tíðindi hvað varðar þingið og samstarf flokksins við stjórnarandstöðuflokkana þar. Með sigri SDG hefði orðið alvarleg samstarfsklemma á þinginu. En þrátt fyrir að sigurvegarinn hafi verið maður meiri yfirvegunar, samráðs og samvinnu, eru tíðindin þau að hér varð til opnun á ákveðnum möguleikum á ríkisstjórnarsamstarfi sem hefðu verið harðlokaðir með sigri SDG. Því er nú verr.
Og Björn Valur Gíslason, varaformaður VG, á bloggi sínu:
Fyrir framsóknarflokkinn hljóta úrslitin að teljast afbragðsgóð. En best þó af öllu eru úrslitin þeim sem vilja herða tök hægriflokkanna á landsstjórninni. Pólitíska landslagið hefur breyst verulega í dag og möguleikar á myndun ríkisstjórnar eftir kosningar hafa einnig skýrst með sigri Sigurðar Inga. Nú er það enn líklegra en áður að ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks lifi af hremmingarnar, ef ekki óbreytt þá með stuðningi Viðreisnar ef á þarf að halda. Í stað trausti rúins formanns Framsóknarflokksins sem enginn hefði viljað eiga í samstarfi við er nú kominn gamaldags litlaus Framsóknarmaður sem mun ekki verða Sjálfstæðisflokknum mikil þraut í samstarfi. Þetta er áhyggjuefni sem kjósendur ættu að velta vel fyrir sér.
En svo má spyrja, opnast ekki líka möguleiki á samstarfi Framsóknar við vinstri flokkana? Almennt má segja að kosningarnar séu háðar nokkuð langt til vinstri. Er svo óralangt milli Vinstri grænna og Framsóknarflokksins? Þess má geta að á árum áður lynti Framsóknarflokknum og Alþýðubandalaginu, forvera VG, oft sérlega vel í ríkisstjórnum.