Hér er stikla úr Steinsteypuöld kvöldsins. Við byrjum á Hótel Borg, glæsihótelinu sem var reist við Austurvöll vegna Alþingishátíðarinnar 1930. Arkitektinn var Guðjón Samúelsson, þetta var að undirlagi Jónasar frá Hriflu, en eigandinn var glímukappinn Jóhannes Jósefsson sem hafði komist í álnir í Ameríku, meðal annars í sýningum hjá sirkusi Barnums.
Klukkan 20.10 á RÚV.