Belgíski munnhörpusnillingurinn Toots Thielemans er látinn í hárri elli. Þetta er maður sem spilaði með Miles, Oscar, Ellu, Bird og Bill Evans.
Ég get varla hugsað mér neitt betra með honum en þetta fallega lag eftir Pat Metheny, Always and Forever frá 1992.
Toots kemur ekki inn fyrr en á 3.53. En hvílík innkoma – lagið svífur eins og inn í eilífðina.