Hérna er nýtt auglýsingamyndband um grísku eyjarnar – þegar við skoðum rekum við augun í að börnin á myndinni eru vinir og leikfélagar Kára Egilssonar.
Þarna eru götur sem hann hefur hlaupið um síðan hann var smábarn.
Og þarna er fleira fólk sem við þekkjum vel, eins og gamla konan sem vökvar blómin og karlarnir sem spila tavli.
Dásamleg fegurð. Hljóðin í börnunum aftast í myndbandinu eru Grikkland eins og ég þekki það og elska.
Og svo er hér mynd af hinni norsku Marianne sem Leonard Cohen söng um. Hún hét fullu nafni Marianne Ihlen og þau voru saman á grísku eyjunni Hydra. Þar varð líka til lagið Bird on a Wire, ort út frá fuglum sem sátu á símalínum.
Marianne dó um daginn, 81 árs að aldri. Leonard skrifaði henni fallegt bréf sem hefur birst víða í fjölmiðlum. Það fjallar um dauðleikann. En hér sjáum við líka fegurðina, fegurð sem við getum fengið að njóta – og vegna þess að hún flýgur hratt framhjá greinum við okkar eigin dauðleika í henni. Sjálfur hef ég gengið þessa bryggju margoft og þekki vel húsin á bakvið.