Nýr forseti tekur við á Íslandi á morgun. Hann hefur til að bera hógværð og lítillæti, þykist ekki vita allt best – það er ákveðin tilbreyting.
Guðna Th. Jóhannessyni skal óskað allra heilla í starf. Manni sýnist á flestu að íslenska þjóðin hafi valið vel.
Það verður áhugavert að fylgjast með fyrstu mánuðum hans í embætti. Guðni hefur gefið nokkuð eindregið til kynna að hann hafi ekki áhuga á tildri og hátignarbrag sem hafa einkennt forsetaembættið lengi. Það er gott, við þurfum ekkert á slíku að halda.
Það verður líka spennandi að sjá hverja Guðni velur að vinum. Fráfarandi forseti, Ólafur Ragnar Grímsson, gerðist mjög áhugasamur um Kína, Rússland og olíuríki við Persaflóann. Þar má líklega fá góð heimboð og njóta mikillar gestrisni, en spurning er hvort þarna séu vinirnir sem þjóðin þarf á að halda eða vill eiga.