Hugmyndir um byggingu risastórs einkasjúkrahúss í Mosfellsbæ vekja ýmsar grunsemdir. Það ríkir leynd yfir eignarhaldinu og hverjir séu fjárfestarnir – beinlínis látið eins og þetta megi ekki gefa upp. Það virkar eins og fyrirsláttur – skálkaskjól. Það er ekki verið að segja nema hálfa söguna – hví ætti maður þá að leggja trúnað á annan fagurgala varðandi þessar stórframkvæmdir?
Í fyrirsvari eru „hollenskur fyrrverandi bankamaður“ og „spænskur hjartalæknir“. Það virkar eins og einhvers konar leiksýning.
Þessar fyrirætlanir ganga gegn hugmyndum sem hafa verið ríkjandi í íslenskri heilbrigðisþjónustu um að aðgangur sé jafn óháð efnahag. Það hefur verið grundvallaratriði. Þarna er farið í átt að heilbrigðiskerfi eins og tíðkast í Bandaríkjunum. Frægt er hvað það er óhagstætt og óréttlátt eins og til dæmis má lesa í þessari nýju úttekt sem er alveg sláandi.
Hollenski bankamaðurinn fyrrverandi segir að þeir séu ekki að leita að íslenskum sjúklingum nema þeir geti borgað.
Þarna er um að ræða stærri einkavæðingu heilbrigðiskerfisins en við höfum áður séð á Íslandi. Þarna verðum við komin með tvöfalt kerfi, heilbrigðisþjónustu fyrir ríkt fólk. Svo er það líka spurning um starfsfólkið – þetta mun hafa í för með sér meiri samkeppni um lækna og hjúkrunarfólk, hugsanlega hærri laun, og meiri kostnað. Það kom reyndar fram nýskeð að læknar hafa hækkað gríðarlega í launum.
Vigdís Hauksdóttir alþingismaður tjáir sig um viðtal við bæjarstjórann í Mosfellsbæ sem fram fór á sjónvarpsstöðinni Hringbraut. Vigdís segir á Facebook:
Er að horfa á Hringbraut og þar er viðtal við bæjarstjórann í Mosfellsbæ.
Hann kynnir verkefnið þannig að það njóti ívilnunar frá íslenskum lögum – og þar með mikil skattahlunnindi – húsnæðið er svo stórt að ef það væri á einni hæð þá næði það yfir 3 hektara
Hvernig var það – var ekki einmitt verið að fjalla um það í vikunni að Holland væri nýjasta aflandslandið?
Hef á tilfinningunni að þarna megi rekja eiganarhaldið til einhverra „víkinga“.
Af heimasíðu Burbanks Capital.