Halldór Laxness kom orðum að ýmsu – og stundum geta þau átt við í óvæntum tilvikum.
Þetta er til dæmis úr Sölku Völku, skáldsögu sem kom út árin 1931-32. Vinur minn á Facebook póstaði þessu og segir að þarna beri Bogesen kaupmaður sig upp við Sölku Völku:
…oft hef ég öfundað þá sem hafa lítil húsakynni, stór hús eru ekki annað en peníngaþjófar, viðhaldið er svo dýrt, þeir geta prísað sig sæla sem eiga lítil hús. Nú, og þaraðauki þá er þetta als ekki mitt hús, það er konan mín sem á það, það er bygt fyrir hennar penínga eftir teikníngu frá Danmörku.