Fréttatíminn birtir ömurlegar lýsingar á framferði fyrirtækis sem er mjög umsvifamikið í húsbyggingum. Er með stór og áberandi verk í Miðborginni, á Grettisgötu og á Laugavegi 4-6. Nágrannar hafa margoft kvartað undan fyrirtækinu við borgaryfirvöld, en með litlum árangri.
Í Fréttatímanum kemur líka fram að fyrirtæki þetta, Brotafl, sé að byggja fangelsið á Hólmsheiði. Má segja að það sé dálítið kaldhæðnislegt, því eigendur fyrirtækisins hafa undanfarið verið í gæsluvarðhaldi, grunaðir um skattsvik, peningaþvætti og mansal.
Fréttatíminn lýsir því hvernig er farið með erlenda verkamenn sem vinna á vegum þessa fyrirtækis í fréttaskýringunni sem ber yfirskriftina Ábatasöm glæpastarfsemi í byggingabransanum. Verkamönnum er hrúgað saman í ótútlegt leiguhúsnæði í iðnaðarhverfum.
Þarna hringja háværar viðvörunarbjöllur. Það er feikilegur uppgangur í byggingariðnaði, en hann virðist líka vera gróðrarstía fyrir svindilbrask, og samkvæmt þessu, glæpi. Það er afskaplega viðkvæmt þegar svo mikið er byggt á erlendu vinnuafli, býður heim arðráni og illri meðferð á verkafólki.
Það er vont ef lægstu hvatir okkar mannanna fá að ráða þarna og getur komið óorði á heila atvinnugrein. Yfirvöld og aðilar í byggingariðnaði sem er annt um orðspor sitt þurfa að vera á verði gagnvart starfsemi af þessu tagi.