Hvers vegna eru Píratar ennþá stærstir, með 35,9 prósent atkvæða? Stærri en ríkisstjórnarflokkarnir samanlagt? Þrátt fyrir deilurnar í þeirra ranni. Getur verið að öllum sé sama um þær?
Píratarnir eru stærstir þrátt fyrir myndina hér að neðan, grafið er frá Ríkisútvarpinu. Þetta er gríðarleg lækkun skulda.
Það er líka bullandi hagvöxtur, meiri en annars staðar á Vesturlöndum, og líkur á að svo verði áfram. Atvinnuleysi er á leiðinni niður í ekki neitt, það þarf að flytja inn vinnuafl í stórum stíl. Samt er óánægja.
Getur verið að hérna sé hluti skýringarinnar? Þetta er úr DV í dag. Léleg laun, háir vextir, lítill kaupmáttur?
Og kannski sú tilfinnig að stjórnvöld séu sífellt að vinna fyrir hagsmunaaðila, séu beinlíns vakin og sofin yfir sérhagsmununum. Það eru til dæmis þessir samningar – sem geta auðvitað ekki talist vera samningar í neinni venjulegri merkingu þess orðs.
Og kannski sú stjórnlausa græðgi sem er að leysast úr læðingi og einhvern veginn skortur á allri viðleitni stjórnvalda til að hafa hemil á henni? Síðast þetta.
Gleymum heldur ekki þessu. 81.871 hafa skrifað undir.
Minna má á að nú er rétt rúmlega ár í kosningar, en minna en ár þangað til flestir flokkar verða komnir með framboðslista og væntanlega kosningastefnu líka. Hvað ætlar fjórflokkurinn að bjóða upp á í kosningunum andspænis þessu fólki sem lítur reyndar út eins og Strumpar á þessari mynd þar sem við erum líka minnt á tilvist stjórnmálaflokks sem virðist ekki eiga nein svör við samtímanum?