Fox News er rotþró fréttamennsku í heiminum. Það er reyndar varla hægt að segja að þar sé stunduð fréttamennska – það sem er flutt þar er frumstæður áróðursþvættingur.
Á Fox News var því haldið fram nýskeð að fólk gæti ekki lengur hætt sér inn í Birmingham – David Cameron sagði að sér hefði svelgst á hafragrautnum þegar hann heyrði það.
Hér eru myndbrot þar sem lygar Fox News eru afhjúpaðar – meðal annars furðuleg samsuða um no go zones í Frakklandi sem hefur verið endurtekin í sífellu síðustu dagana.