fbpx
Mánudagur 22.júlí 2024
Eyjan

Stór yfirlýsing um heilbrigðismál

Egill Helgason
Fimmtudaginn 8. janúar 2015 17:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekki verður betur séð en að yfirlýsingin sem ráðherrar undirrituðu ásamt fulltrúum lækna í tengslum við gerð nýs kjarasamnings sé býsna merkileg.

Þarna er beinlínis kveðið á um byggingu nýs Landspítala.

Sambærilegt heilbrigðiskerfi og það besta á hinum Norðurlöndunum (í þessu felst viðurkenning á því að svo sé ekki lengur).

Aukið fjármagn til heilbrigðismála.

Aukna „samtvinnun“ Landspítala og heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni.

Launakjör lækna sem eru „samkeppnisfær“ við það sem er á Norðurlöndunum.

Opnun á möguleika á fjölbreyttari rekstrarformum. Þó er tekið fram að þar verði byggt á „jafnræði í greiðslum“. Þýðir þá hugsanlega meiri einkarekstur en ekki einkavæðingu.

Þetta eru stór fyrirheit og það verður ærið að starfa í heilbrigðismálunum eigi þau að ganga eftir. En líklega eru flestir sammála um að átaks sé þörf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Miskunnsamur Samverji lögum samkvæmt

Þorsteinn Pálsson skrifar: Miskunnsamur Samverji lögum samkvæmt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Áslaug Arna teflir öllu fram og segir Sjálfstæðisflokkinn geta gert margt betur – „Sorglegt að sjá víða að við förum ekki betur með fé“

Áslaug Arna teflir öllu fram og segir Sjálfstæðisflokkinn geta gert margt betur – „Sorglegt að sjá víða að við förum ekki betur með fé“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum