Eins og áður er komið fram eru þættirnir Vesturfarar komnir út á DVD. Þeir eru með enskum og íslenskum texta – og gefnir út þannig að hentar bæði Evrópu og Ameríkumarkaði. Hér eru upplýsingar um hvar er hjægt að nálgast þættina.
Pal útgáfan af Vesturförum er fáanleg í:
Elkó verslunum
Skífuverslunum
Heimkaup
Hagkaupsverslunum
Pennanum/Eymundsson
Nettó og Krónunni
Samkaup-úrval
NTSC útgáfan fyrir Ameríku og Kanada kemur á fimmtudaginn og verður fáanleg í Pennanum/Eymundsson og Elkó verslunum auk Fríhafnarinnar. Við munum auglýsa sérstaklega hvar hún fæst því það er ekki hægt að dreifa þeirri útgáfu víða.
Við munum verða með sölu hér í RÚV frá og með mánudeginum 15. desember. Þá verða Vesturfarar og annað efni frá okkur til sölu í anddyrinu hjá þeim sem taka á móti jólakveðjum.