Á vefnum Túristi.is birtast merkilegar upplýsingar um gistináttagjald á hótelum í erlendum borgum – til dæmis í borgum sem Icelandair flýgur til. Við höfum semsagt mörg lent í því að borga þetta gjald þegar við förum til útlanda.
Þarna eru borgir eins og Amsterdam, Barcelona, Berlín, New York, París, Seattle og Toronto.
Gjaldið er misjafnlega hátt, en það bætist við virðisaukaskatt á gistingu sem víða er hærri en hér á Íslandi. Hérna er hann aðeins 7 prósent, en sums staðar 10-15 prósent.
Samkvæmt þessu eru álögur á hótelgistingu mjög lágar á Íslandi – á tíma þegar manni virðist að hætta sé á að hér verði byggð alltof mörg hótel.
Á Túristi.is má finna mun nákvæmari upplýsingar, meðal annars sundurliðað gistináttagjald og virðisaukaskatt í ýmsum borgum.