fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Eyjan

Borgað af Icesave – verðtryggt aftur vinsælt

Egill Helgason
Föstudaginn 5. desember 2014 13:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsbankanum hefur verið leyft að greiða út forgangskröfur  upp á 400 milljarða króna í gjaldeyri. Það getur ekki annað þýtt en að gjaldþrotaleiðin, sem sumir hafa talað fyrir varðandi bankana föllnu sé úti.  Það hefði verið í litlu samræmi við neyðarlögin frá 2008 ef þessar kröfur hefðu ekki verið greiddar. Nýlegur hæstaréttardómur gerir líka út um þá hugmynd að greiða erlendum kröfuhöfum í krónum.

Og jú. þetta eru Icesave-peningar, og þá hlakkar í mörgum, en því má ekki gleyma að með þjóðaratkvæðagreiðslum var búið svo um hnútana að íslenska ríkið varð ekki ábyrgt. Það var mikilvægt.

Það verður merkilegt að sjá hvaða skref verða tilkynnt í átt til afnáms haft eftir helgina. Verða það hænufet eða stökk? Menn vilja ekki gera neitt sem ógnar stöðugleikanum sem þó ríkir inan haftana.

Við sláumst til Íslendingar. Fyrir stuttu var ekki til verra skammaryrði en „verðtrygging“. En nú erðbólgan mjög lítil. Lántakendur keppast við að taka verðtryggð lán, eins og enginn sé morgundagurinn.

Þá er spurning hvort aftur verði kvarta undan „forsendubresti“ ef verðbólgan fer í gang. Sem hún hlýtur að gera, ef eitthvað er að marka lærdóm íslenskrar hagsögu.

 

Verðryggðu-lánin-aldrei-hagstæðari

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Svarthöfði skrifar: Mjúk lending að hætti AGS – vaxtalækkun eftir ár, kannski

Svarthöfði skrifar: Mjúk lending að hætti AGS – vaxtalækkun eftir ár, kannski
Eyjan
Fyrir 1 viku

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Einstaklingshyggjan hefur rænt okkur vitinu

Sigmundur Ernir skrifar: Einstaklingshyggjan hefur rænt okkur vitinu