Lækkað olíuverð hefur ýmsar breytingar í för með sér. Norska félagið DOF þjónustar olíuiðnaðinn. Verð hlutabréfa í fyrirtækinu hefur fallið um 55 prósent og nú hefur verið tilkynnt um hópuppsagnir.
Á sama tíma hafa íslenskir lífeyrissjóðir ákveðið að fjárfesta í olíuþjónustufyrirtækinu Fáfni Offshore.
Orkubloggarinn Ketill Sigurjónsson spyr á Facebook:
Væri ekki nær að stjórnendur lífeyrissjóðanna hættu sínum eigin peningum í slíka áhættufjárfestingu?