Eitt af því sem maður heyrir í umræðum um Ríkisútvarpið er að það hafi nóga peninga þrátt fyrir að fjárveitingar séu skornar niður.
Lítum aðeins á þetta.
Þegar Ríkisútvarpið var gert að opinberu hlutafélagi 2008 var útvarpsgjaldið ákveðið 17.200 á ári. Nú, sjö árum síðar, stefnir í að gjaldið verði 16.400 á ári. Raunlækkunin er um fjórðungur.
Þetta þarf að skoðast í ljósi þess hlutverks sem Ríkisútvarpinu er markað í lögum. Þar er fjallað um hlutverk, skyldur og umfang. Þetta er ansi víðfemt – og kostnaðarsamt.
Í þessari umræðu er algjörlega nauðsynlegt að skoða lögin – ef menn vilja öðruvísi Ríkisútvarp þarf að breyta þeim. Og þá er hægt að miða fjárveitingar við breytt umfang.
Ríkisútvarpið skal framleiða og miðla vönduðu og fjölbreyttu efni með mismunandi tæknilegum aðferðum til allra landsmanna óháð búsetu. Ríkisútvarpið skal gera ráðstafanir til að hægt sé að flytja fréttir og framleiða efni utan höfuðborgarsvæðisins með fastri starfsemi á völdum svæðum.
Fjölmiðlaefnið skal hið minnsta vera fréttir og fréttaskýringar, fræðsluþættir, íþróttaþættir, afþreying af ýmsum toga, lista- og menningarþættir og sérstakt efni fyrir börn og ungmenni.
Ríkisútvarpið skal dreifa efni til alls landsins og næstu miða með a.m.k. tveimur hljóðvarpsdagskrám og einni sjónvarpsdagskrá árið um kring. Enn fremur að birta valda hluta efnis síns, breytta eða óbreytta, ásamt öðru efni í breyttu eða óbreyttu formi með öðrum miðlunarleiðum, þ.m.t. að gera efni aðgengilegt almenningi með þeim hætti að hver og einn geti fengið aðgang að efninu og/eða þjónustunni á þeim stað og á þeirri stundu er hann sjálfur kýs.
Ríkisútvarpið skal í samvinnu við til þess bær stjórnvöld tryggja nauðsynlega öryggisþjónustu með upplýsingamiðlun um útvarp og þegar við á eftir öðrum boðleiðum. Ríkisútvarpið skal í því skyni setja sér öryggisstefnu um órofinn rekstur hljóðvarpsþjónustu um land allt og á næstu miðum.
Ríkisútvarpið skal varðveita hljóðritanir, filmur, myndefni og aðrar sögulegar minjar sem ætla má að hafi menningarlegt og sögulegt gildi fyrir íslensku þjóðina og heyra ekki sérstaklega undir lög um skylduskil til safna. Ríkisútvarpið skal tryggja sem greiðast aðgengi að safnaefni, hvort sem er til einkanota eða til viðskiptalegrar hagnýtingar sjálfstæðra framleiðenda. Heimilt er að fela viðurkenndum söfnum varðveislu framangreindra menningar- og söguminja en óheimilt er að selja þær, gefa eða farga nema að fenginni umsögn safnaráðs samkvæmt safnalögum.
Og ennfremur:
Ríkisútvarpið skal sinna menningarlegu hlutverki sínu m.a. með því að:
Leggja rækt við íslenska tungu.
Kynna sögu þjóðarinnar, menningararfleifð og náttúru.
Bjóða fjölbreytt og vandað menningarefni og fjalla um ólík svið menningar, lista og íþrótta á Íslandi og erlendis, auk þess að vera vettvangur umræðna og skoðanaskipta um íslenska menningu og samfélag.
Framleiða sjálft og í samstarfi við aðra lista- og menningarefni, með sérstakri áherslu á leikið efni, auk þess að endurspegla samtímamenningu þjóðarinnar. Ríkisútvarpið skal vera virkur þátttakandi í íslenskri kvikmyndagerð, m.a. með kaupum frá sjálfstæðum framleiðendum. Í samningi sem ráðherra gerir við Ríkisútvarpið skv. 4. mgr. 2. gr. skal mælt fyrir um lágmarkshlutfall dagskrárefnis sem keypt er af sjálfstæðum framleiðendum.
Framleiða og miðla fjölbreyttu efni við hæfi barna og ungmenna.
Miðla afþreyingar- og menningarefni við hæfi fólks á öllum aldri. Erlent efni skal vera frá mismunandi menningarheimum og áhersla lögð á norrænt og annað evrópskt efni.
Í framhaldi af þessu má minna á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem sagði:
„Íslensk þjóðmenning verði í hávegum höfð, að henni hlúð og hún efld. Áhersla verður lögð á málvernd, vernd sögulegra minja og skráningu Íslandssögunnar, auk rannsókna og fræðslu… Ríkisstjórnin mun vinna að því að auka virðingu fyrir merkri sögu landsins, menningu þess og tungumálinu, innanlands sem utan.“
Reyndar kom fram í fréttum á þessum tíma að Framsóknarflokkurinn vildi láta útvarpsgjald óskipt renna til Ríkisútvarpsins:
„Á RÚV hvílir rík, lýðræðis- og samfélagsleg skylda og því ber að þjóna öllu landinu. Útvarpsgjaldið verður því að renna óskipt til Rúv.“