Næstsíðasta Kiljan fyrir jól er í sjónvarpinu í kvöld.
Guðbergur Bergsson kemur í þáttinn til að ræða bók sína Þrír sneru aftur.
Við fjöllum um Sveitina í sálinni, ríkulega myndskreytta bók Eggerts Þórs Bernharðssonar um mörk sveitar og borgar í Reykjavík um miðja tuttugustu öld.
Kristín Eiríksdóttir segir frá ljóðabókinni Kok sem er tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna – bókin inniheldur líka teikningar eftir Kristínu.
Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur, þær eru Snjór í myrkri eftir Sigurjón Magnússon, Ástarmeistarinn eftir Oddnýju Eir Ævarsdóttir og Bara ef… eftir Jónínu Leósdóttur.
Í dagskrárliðnum Bækur og staðir förum við í Hafnarfjörð og segjum frá skáldinu Magnúsi Stefánssyni sem einnig kallaði sig Örn Arnarson.