Eins og kemur fram í þessari myndstiklu eru sjónvarpsþættirnir Vesturfarar komnir út á DVD í vandaðri útgáfu – með enskum texta.
Með fylgir ítarefni, þáttaröð sem Ólafur Ragnarsson gerði 1976 og myndin Ísland á sléttum Kanada frá 1941.
Þættirnir eru gefnir út í tveimur útgáfum – önnur fyrir Ísland og Evrópu, en hin fyrir Bandaríkin og Kanada.