Í Kiljunni á miðvikudagskvöld fjöllum við um stórvirki Jóns Friðjónssonar prófessors sem nefnist Orð að sönnu. Þetta er stórt yfirlitsrit um íslenska málshætti og orðskviði.
Gyrðir Elíasson er í viðtali í þættinum, en hann sendir frá sér tvær bækur með frumsömdu efni nú fyrir jólin, smásagnasafnið Koparakur og Lugnafiska sem er safn af smáprósum.
Oddný Eir Ævarsdóttir segir frá skáldsögu sinni sem nefnist Ástarmeistarinn.
Við fjöllum líka um sjónvarpsþættina dönsku 1864 sem hafa verið sýndir á Rúv undanfarið. Svo vill til að milli stórrar persónu í þeim þáttum og Jónasar Hallgrímssonar eru merkileg tengsl. Una Margrét Jónsdóttir fræðir okkur um þau.
Í dagskrárliðnum Bækur og staðir er fjallað um hina merku Simmasjoppu sem stóð við Suðurgötu. Hún kemur fyrir í verkum ýmissa höfunda.
Gagnrýnendur þáttarins taka til umfjöllunar Drápu eftir Gerði Kristnýju, Þrír sneru aftur eftir Guðberg Bergsson, Vonarlandið eftir Kristínu Steinsdóttur og Ókyrrð eftir Jón Óttar Ólafsson.
Gyrðir Elíasson er tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Koparakur, en hann er líka tilnefndur til þýðingaverðlauna fyrir þýðingar á ljóðum japanska skáldsins Shuntaro Tanikawa