Síðasti þáttur Vesturfara er á dagskrá Rúv í kvöld klukkan 20.15
Í þessum þætti förum við vestur á strönd Kyrrahafsins og fræðumst um Íslendingabyggðir þar. Íslendingar fóru flytja þangað þegar járnbrautin náði alla leið vestur. Lífið var að mörgu leyti auðveldara þar en á hinum harðbýlu sléttum, enda er loftslagið milt og gróðurfar gott.
Við förum til fjölþjóðaborgarinnar Vancouver, til Victoria sem er á Vancouvereyju, og til Point Roberts, en það er skagi sem tilheyrir Bandaríkjunum þótt hann sé landluktur inni í Kanada. Þar er merkileg byggð Íslendinga sem hófst í upphafi 20. aldar.
Margt merkilegt fólk kemur við sögu eins og stjórnmálamaðurinn Boss Johnson, prófessor Ríkharður Beck, flugkappinn og Ólympíuverðlaunahafinn Frank Fredrickson og landar sem voru svo þakklátir Teddy Roosevelt Bandaríkjaforseta að þeir sendu honum sauðargæru að gjöf.
Á siglingu milli fagurra eyja – á leiðinni frá Vancouver til Victoria.