Það er alveg ljóst að það er býsna fámennur hópur sem brennur í andanum vegna sölu áfengis í matvöruverslunum.
Skoðanakönnun Fréttablaðsins í dag sýnir að tveir þriðjuhlutar aðspurðra eru á móti því að svo verði.
En eins og segir, þetta er ekki mjög ofarlega í huga fólks – ólíkt til dæmis heilbrigði-, mennta- og atvinnumálum – og vegna þess að málið er fremur lágt á forgangslista er ekki ósennilegt að talsverðar sveiflur geti verið í afstöðu til þess.
Líkt og áður hefur verið bent á hér er ekki útilokað að meirihluti sé fyrir því á Alþingi að leyfa sölu víns í matarbúðum.
Það er hins vegar spurning hvort ríkisstjórnin kærir sig um að hleypa málinu alla leið í gegnum þingið – sérstaklega í ljósi þessarar niðurstöðu. En kannski er allt í lagi að láta fólk hafa eitthvað annað til að deila um en heilbrigðiskerfið og skuldamál?
Svona lítur þetta út hjá Fréttablaðinu.