Því miður hefur fjölgað mjög í hópnum Mótmælum mosku á Íslandi. Síðast þegar ég tékkaði voru meðlimir um 2000, nú eru þeir 5026.
Samhliða því er vefurinn orðinn miklu harðari, orðbragðið er orðið ljótara en áður, stafsetningin verri, hatrið meira – og allt saman ógeðfelldara.
Það er vísast alveg rétt sem sagt var, það var opnað fyrir gátt síðastiðið vor og óhroðinn streymir út, samanber þessa færslu sem virðist vera komin frá sjálfum ritstjóra vefsins – hver sem hann er.
Það er spurning hvernig á að tækla svona. Guðfræðingurinn Bjarni Randver Sigurvinsson reynir malda í móinn, en fær yfir sig skammir. Bjarni er formaður Starfshóps þjóðkirkjunnar um samskipti við önnur trúarbrögð. Hann spyr:
Kæru vinir úr samtökunum Mótmælum mosku á Íslandi, hvernig getið þið stutt hatursboðskapinn sem þau standa fyrir og boða upp á hvern einasta dag?