Send hefur verið út á fjölmiðla skoðanakönnun sem sýnir að Hanna Birna Kristjánsdóttir myndi sem formaður Sjálfstæðisflokksins höfða meira til kjósenda en Bjarni Benediktsson – að minnsta kosti virðist staðan vera þannig nú.
Könnunin er gerð í nafni hóps sem kallar sig Samtök áhugafólks um stjórnmál.
Það er nátturlega heldur bagalegt að vita ekki hverjir standa að baki þessa hóps – varla er hann mjög fjölmennur? Er þetta gert með vitund og vilja Hönnu Birnu sjálfrar?
Könnunin er birt nú þegar einungis tvær vikur eru í landsfund Sjálfstæðisflokksins. Það er spurning hvort þarna sé tilraun til að hrinda af stað atburðarás sem leiddi til þess að Hanna Birna yrði kjörin formaður flokksins.
En þá er þess að gæta að hún hefur sagt að hún ætli ekki í formannsframboð, en hún hefur sagst ætla að bjóða sig fram til varaformanns. Og hennar bíður stórt ráðherraembætti ef Sjálfstæðisflokkurinn kemst í stjórn í næstu kosningum.