Einar Kárason rithöfundur setti þessa færslu inn á Facebook-síðu sína, hann fullyrðir að sagan sé sönn:
„Ég heyrði þessa sögu frá manni sem var viðstaddur smóking-síðkjóla-áramótaboð með öllum helstu auðmönnum landsins nú fyrir fáum dögum; 2012/13. ÓRG var að sjálfsögðu við háborðið, en líka einn flokksleiðtogi: Bjarni Ben. Óli er kynntur inn við standandi fögnuð sem heiðursgestur og ræðumaður kvöldsins. Hann fer í pontu og býður BB sérstaklega velkominn, og „gott fyrir hann að fá að prófa að sitja við sama borð og forsetinn!“ Salurinn stóð upp og æpti af fögnuði. ÓRG gerði kúnstpásu og bætti svo við: „Ég vona að Jóhanna heyri ekki til mín!“ Þá varð fögnuðurinn svo mikill að sumir urðu að bregða sér afsíðis vegna iðrakrampa.
Þetta er ekki skaupið. Þetta er sönn, glæný saga.“